STÆR1PH03 - Fjármálalæsi

Áhersla verður á fjármálalæsi í víðu samhengi. Farið verður yfir helstu persónulegu útgjöld í lífi ungs fólks, heimilisbókhald og gildi þess að halda utan um eigin fjármál. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.