STAÞ2BB20 - Starfsþjálfun II í múraraiðn

Áfanginn felur í sér starfsþjálfun á námssamningi þar sem nemandi beitir þeirri þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í náminu. Kröfur í starfsþjálfun aukast stig af stigi. Að loknu námi í skóla, starfsþjálfun og fullnægjandi útfylltri ferilbók er neminn tilbúinn í sveinspróf. Á 2. þrepi er dregið úr aðstoð en tilsögn meistara ætíð tiltæk. Sjálfstæði nemandans eykst síðan eftir því sem á námið líður. Á 2. þrepi þekkir nemandi vel til vinnustaðamenningar og verksviða fagsins. Hann öðlast aukna færni í að beita áhöldum og nota efni sem tilheyra faginu. Hann getur unnið með viðurkenndu verklagi samkvæmt öryggisreglum og fylgt hönnunargögnum með tilsögn. 

Slóð á áfanga í námskrá