TRÉS1HV08 - Trésmíði og handavinna

Í áfanganum eru kennd grunnatriði trésmíða með áherslu á þekkingu og færni í notkun handverkfæra og rafmagnshandverkfæra, trésamsetningar. Haldið er áfram umfjöllun um efnisfræði tréiðna þar sem ítarlegar er farið í ýmsa eðliseiginleika viðar, flokkun, merkingar og þurrkun. Tekið er fyrir val og umhirða á verkfærum s.s. stillingar og brýnsla. Nemendur læra að nota hefilbekki og stilla með áherslu á góða vinnuaðstöðu við mismunandi verk. Kennslan byggist að hluta á fyrirlestrum þar sem kennari útskýrir grunnatriði fyrir nemendum en stærsti hlutinn eru fjölbreytileg smíðaverkefni sem byggjast á markmiðum áfangans. Í áfanganum læra nemendur notkun lofthandverkfæra. Fjallað er um algengustu lofthandverkfæri sem notuð eru í tré- og byggingaiðnaði, meðferð þeirra og viðhald. Kynntar eru mismunandi loftpressur og farið yfir gerð og notkun helstu loftverkfæra. Kennsla í áfanganum byggir á innlögnum frá kennara þar sem hann útskýrir grunnatriði fyrir nemendum. Áfanginn er bæði kenndur á námsbrautum fyrir húsasmiði og húsgagnasmiði.  

Slóð á áfanga í námskrá