UMHV2UN05 - Umhverfisfræði fyrir alla

Í áfanganum, sem ætlaður er nemendum af öllum námsbrautum, er lögð áhersla á að nemendur verði meðvitaðri um þátt einstaklingsins í umhverfisvernd. Nemendur kynnast aðferðum til að áætla áhrif breyttra lifnaðarhátta á umhverfið og leitast er við að auka ábyrgðartilfinningu einstaklingsins gagnvart bæði sínu nánasta umhverfi og umhverfisins á hnattvísu. Nemendur kynnast helstu umhverfisvandamálum sem við glímum við í heiminum. Fjallað verður um mengun, veðurfarsbreytingar, dýr í útrýmingarhættu, og auðlindaþurrð. Kynnt verða hugtökin „burðargeta“ og „sjálfbærni“, og hugtökin tengd fjölgun mannkyns og aðstæðum á jörðinni. Enn fremur verður fjallað um sjálfbæra auðlindanýtingu. Í áfanganum er leitast við að auka hæfni nemenda í að túlka gögn sem tengjast umhverfismálum á gagnrýninn hátt. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni með gögn sem tengjast umhverfismálum. Nemendur verða hvattir til að velta því fyrir sér hvað móti tengsl manns og náttúru. Fjallað verður um muninn á hagrænum og fagurfræðilegum verðmætum og nemendur hvattir til að velta því fyrir sér hvað hafi áhrif á verðmætamat hvers og eins þegar kemur að því að meta verðmæti í náttúrunni.

Slóð á áfanga í námskrá