VINN2LS08 - Verknám á sjúkrahúsi

Vinnustaðanámið fer fram á almennri deild á sjúkrahúsi s.s. skurð- og lyflækningadeildum. Verklegur hluti áfangans er 15 átta klukkustunda vaktir á önn. Nemendur vinna jafnframt verkefni tengt viðfangsefnum vinnustaðanámsins. Kennari áfangans, sjúkraliði/leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandi fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða og öðlast þjálfun í þeim. Í upphafi tímabils setur nemandi sér persónuleg og fagleg markmið um vinnustaðanámið. Á meðan á vinnustaðanámi stendur skal nemandi fylla út gátlista og ferilbók um unna verkþætti. 

Slóð á áfanga í námskrá