45 nemendur útskrifuðust frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum föstudaginn 29. maí 2026
01.06.2026
Föstudaginn 29. maí síðastliðinn var 45 nemendum frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum fagnað við hátíðlega brautskráningu á sal skólans. Dagurinn markaði mikilvæg tímamót í lífi nemenda sem luku námi af fjölbreyttum námsbrautum skólans og héldu út í framtíðina með nýja þekkingu, reynslu og tækifæri í farteskinu.